Berlínur Berlínur Menu
  • HEIM
  • UM OKKUR
  • FERÐIR
  • GAGNLEGT
  • BLOGG
  • HAFA SAMBAND
  • HEIM
  • UM OKKUR
  • FERÐIR
  • GAGNLEGT
  • BLOGG
  • HAFA SAMBAND

Funhiti

03.08.2015 Eftir Berlinur Almennt, Mannlíf, Matur, Menning, Náttúra, Veitingastaðir Engar athugasemdir

Á næstu dögum er von á ekki færri en tveimur hitabylgjum. Fyrsti hápunkturinn er á morgun með 34 gráðum og á föstudaginn er spáð 37 gráðum. Eins gott að vera vel undirbúin/inn og vita um alla mögulega gosbrunna í borginni til að kæla sig.

Afar þægilegt er að láta fara vel um sig í skugga í almenningsgarði á slíkum hitadögum. Og ekki er verra ef garðurinn státar af gosbrunni eða jafnvel ökklahárri buslulaug – nema hvort tveggja sé!

Í Plansche í Weinberggarðinum í Mitte er afar skemmtilegur staður til að kæla sig á annars óbærilegum dögum. Seinnipart daga getur orðið fjölmennt þegar foreldrar koma saman með börn eftir leikskóla og því er hentugra að mæta fyrr fyrir þá sem hafa möguleika á því. Þegar kvölda tekur hættir að sprautast úr gosbrunnunum en það er áframhaldandi góð stemmning í garðinum, fólk er afslappað og nýtur lífsins. Þar í kring er líka allt til alls og alveg hægt að verja heilum degi á svæðinu. Nola’s veitingastaðurinn býður matseðil úr Ölpunum en einnig er þar að finna frábæran pall með útsýni yfir garðinn. Svo er stutt í ísbúðina Süsse Sünde en þar er hægt að fá himneska ísa.

Berlínur mæla með að finna sér kaldan stað á komandi dögum til að lifa hitabylgjurnar af.

Plansche – Weinbergpark, Weinbergsweg 11, 10119 Berlin – Mitte
Nola’s am Weinberg, Veteranenstraße 9, 10119 Berlin – Mitte
Süße Sünde, Weinbergsweg 21, 10119 Berlin – Mitte

nýrri
eldri

Engar athugasemdir

skilja eftir skilaboð Cancel Reply

Netfangið þitt verður ekki birt.

Berlinur
Hér skrifa Berlínur um það sem er að gerast í Berlín hverju sinni. Hvort sem það sé heimsókn á áhugaverðan veitingastað, innlit á listsýningu eða sögutengt efni. Kannski jafnvel bara það sem er þeim efst í huga hverju sinni.
Flokkar
  • Almennt
  • Íþróttir
  • Listir
  • Mannlíf
  • Matur
  • Menning
  • Náttúra
  • Saga
  • Veitingastaðir
SÍÐUR
  • BLOGG
  • FERÐIR
  • GAGNLEGT
  • HAFA SAMBAND
  • HEIM
  • IMPRESSUM
  • UM OKKUR
FYLGIST MEÐ
  • Facebook
SÍÐUSTU FÆRSLUR
  • Computer Spiele Museum
  • Fjall Djöfulsins – Teufelsberg
  • Safnaborgin Berlín
  • Matar- og skranmarkaðir í Berlín
  • Garðahangs

© Berlinur, 2016